Smygl og flandur í barbaríinu / / Ásgeir H Ingólfsson smyglar

Tilkynningar

Næsta stríð: Ný ljóðabók eftir Ásgeir H Ingólfsson

Út er komin ljóðabókin Næsta stríð eftir Ásgeir H Ingólfsson. Ásgeir var langt kominn með að ganga frá handriti að bókinni þegar hann lést í janúar 2025 og það var eindregin ósk hans að bókin yrði gefin út eftir hans dag. Bókin er þriðja ljóðabók Ásgeirs, en áður komu út Grimm ævintýri (2010) og Framtíðin (2015)

Næsta stríð hefur að geyma fjölbreytt ljóð eftir Ásgeir, sem eru flest samin á síðasta áratug ævi hans (2015-2025). Á þessum tíma dvaldi Ásgeir að stórum hluta í Prag í Tékklandi og ljóðin litast mörg af því. COVID tímabílið – eða Kófið (eins og Ásgeir kallar það) – fær líka sinn sess. Pokadýr, skúringakonur, kettir og körfuboltavellir eru meðal þess sem ber á góma. Átök og húmor í bland.

Þeim sem vilja nálgast bókina er bent á helstu bókabúðir en einnig er hægt að nálgast hana til kaups hjá eftirfarandi:

Reykjavík:
Auður H. Ingólfsdóttir (systir)
Netfang: aingolfs@transformia.is
Sími: 892 0678

Akureyri:
Hrefna Hjálmarsdóttir (móðir)
Netfang: hhia@simnet.is
Sími: 847 2742