Smygl og flandur í barbaríinu / / Ásgeir H Ingólfsson smyglar

Af öðrum vettvangi, Kistan

Nývöknuð Kista, gamalt Ísland

{Þessi pistill birtist upprunalega á Kistunni sem Ásgeir ritstýrði um tíma}

Hvaða gagn er af sögum sem eru ekki einu sinni sannar?

Þessar efasemdir skrifstofublókarinnar Sengúpta þurfa sögupersónur Salmans Rushdie í Harún og Sagnahafið að berjast við. Og fyrst eftir að ég las bókina skrifaði ég langa varnarræðu til varnar skáldskapnum. En það var áður en ég vaknaði upp í sögu um góðæri stærstu og bestu smáþjóðar í heimi og ég verð að játa það að ég á enn í erfiðleikum með að sjá hvaða gagn var í þeirri lygasögu – en ég er hins vegar sannfærður um að ástæðan fyrir því er hvað hún var fjandi illa skrifuð.

Framhaldið er enn sem komið er ekki mikið skárra, þrátt fyrir nokkuð líflegan búsáhaldakafla síðasta vetur. Það eru ennþá bankamenn og pólitíkusar sem halda um pennann og iðrun þeirra ristir seint djúpt og persónusköpun er öll afskaplega yfirborðskennd, framtíðarsýnin skammsýn. Enda var þetta allt öðrum að kenna.

Nýja Ísland. Muniði eftir þessum frasa sem var einn af okkar helstu vonarneistum í pottaslætti síðasta vetrar? Hann hefur ekki heyrst lengi. Það er eins og allir hafi sætt sig við að Ísland verður ekkert nýtt, Nýja Ísland verður alveg eins og það gamla, bara blankara.

Enda erum við flest ennþá í vörn. Að verja það sem fyrir er, koma í veg fyrir að alltof mikið verði skorið niður. Og á meðan gleymum við að skapa. Láta okkur dreyma um hvað við ætlum að gera í framtíðinni. Það er ágætt að lifa í núinu, en kannski ekki ef það snýst bara um að lifa núið af.

Og jú, það er vissulega eitthvað skapað ennþá. Maður heyrir bara svo lítið um það. Í góðærinu voru risastór göt í íslenskri menningarumfjöllun. En þessi risastóru göt eru á góðri leið að breytast í svarthol. Listamenn yrkja í tómarúm, tómarúm þar sem ekkert pláss virðist vera fyrir nema afskaplega yfirborðslega umfjöllun um verk þeirra – með fáeinum heiðarlegum undantekningum, vitaskuld. Fræðin eru svo jafnvel enn stærra svarthol, þótt þúsundir Íslendinga stundi nú háskólanám þá fer ósköp fáum sögum um það hvað þeir séu að læra, sú viska fær alltof sjaldan að rata út undir bert loft.

Kistuna langar að hjálpa til við að stoppa í þessi göt. Hún gerir það ekki ein og vill nota tækifærið og kveðja hið samkeppnismiðaða gamla Ísland, það sem áður voru kallaðir samkeppnisaðilar köllum við viðmælendur. Kistan þráir umræður um menningu og listir, fræði og hugmyndir, pólitík og hugsjónir, hún vill birta þær umræður sjálf en sömuleiðis eiga kost á að lesa þær sem víðast.

Kistan er uppfull af hugmyndum en veit ekki enn nákvæmlega hverjum hún getur hrint í framkvæmd, hana langar að snyrta sig til og fara í rækilega andlitslyftingu, kynna fyrir lesendum helling af nýjungum á milli þess sem hún rifjar upp gamla takta í ritdómum og greinaskrifum.

En fyrst, vakna og nudda stýrurnar úr augunum til að sjá hvað nýr dagur ber í skauti sér.

Ásgeir H Ingólfsson, ritstjóri