Ég heiti Ásgeir H Ingólfsson og er skrifandi farandverkamaður
Þessi undirsíða er aðallega hugsuð fyrir þá sem hafa áhuga á að ráða mig í frílansvinnu – já, eða vilja bara njósna um mig.
Ég er blaðamaður, kennari, rithöfundur, þýðandi og textasmiður og hef búið ýmist á Íslandi, í Tékklandi eða á Englandi undanfarin misseri. Ég er fæddur á Akureyri og hef búið þar, í Reykjavík, á Laugarvatni og á Sauðárkróki. Sem og í Längenfeld í Austurríki, Southampton á Englandi og í Prag, Tábor og Zlín í Tékklandi. Fyrir utan endalaus ferðalög.
Ég tek að mér störf í textavinnu, hugmyndavinnu, blaðamennsku, kennslu og þýðingum og gæti alveg hugsað mér að prófa sitthvað fleira í menningargeiranum.
Menntun:
Ég hef lokið MA-námi í ritlist við Háskólann í Southampton og MA-námi í blaðamennsku við HÍ, BA-námi í bókmenntafræði við Háskóla Íslands og Karlsháskóla í Prag og kennsluréttindanámi við Háskóla Íslands.
Blaðamennska:
Ég hef áralanga reynslu í blaðamennsku, bæði á íslensku og ensku, bæði á ritstjórn og í lausamennsku.
Ég hef langmest skrifað um menningu og listir – en líka helling um alþjóðamál, pólitík og ferðalög.
Ég hef skrifað fyrir fjölda miðla, þar á meðal Stundina, Fréttatímann, RÚV, Morgunblaðið, Smuguna, Klapptré, Starafugl, Krítík, The Reykjavík Grapevine, Cineuropa, Stúdentablaðið, Muninn, Kistuna, Land og syni og Torfið.
Þessum þremur síðastnefndu ritstýrði ég líka.
Þýðingar:
Ég þýði úr ensku á íslensku – eða öfugt.
Ég er vanur að vinna með enskuna, hef dvalið langdvölum erlendis og kláraði mastersnám í ritlist við University of Southampton, auk þess sem ég hef kennt ensku við tvo mismunandi framhaldsskóla á Íslandi.
Ég hef þýtt alls konar texta. Meðal annars:
Ljóð
Heimildamynd
Myndasögu
Golfbílabækling
Kafla í bjórbók
Lögregluskjöl
Sjúkraskjöl
Samninga
Texta á heimasíðum samtaka
Fréttatexta fyrir sendiráð
Kynningartextar:
Ég hef unnið við textaskrif og kynningarstörf við báðar stærstu kvikmyndahátíðir Reykjavíkur, Stockfish og RIFF.
Þar hef ég samið bæði stutta og langa kynningartexta um myndir og leikstjóra, grafið upp forvitnilega fróðleiksmola og stjórnað málþingum og Spurt-og-svarað sýningum.
Lokaritgerðir – prófarkalestur:
Ég hef prófarkalesið lokaverkefni, bæði á BA/BS og MA/MS stigi.
Hef einnig samræmt heimildaskrá við lokaverkefni.
Bækur:
Ég hef gefið út tvær ljóðabækur; Grimm ævintýri (2010) og Framtíðina (2015).
Sú síðari er fáanleg á ensku.
Ritstýrði einnig bók Bjarka Valtýssonar, Íslensk menningarpólitík (2011).
Hér má lesa meira um bækurnar og hér getiði keypt þær.
Önnur starfsreynsla:
Ég hef unnið sem bóksali og kennt ensku við tvo framhaldsskóla. Fyrir utan gullaldarárin sem prikastrákur við Umhverfisdeild Akureyrar og þjónustustörf í Vínbúðinni á Akureyri og skíðaveitingastaðnum Giggijoch í Týrólsku Ölpunum.
Hafa samband:
Það er langeinfaldast að senda mér ímeil.
Netfangið er: asgeirhi (hjá) gmail.com
Sími: 690-1827