Smyglið fagnar nýju ári með því að dusta rykið af viðtækjunum og hefja nýja sjónvarpsþáttaröð. Heiða Eiríksdóttir, Benedikt Erlingsson og Gunnar Hrafn Jónsson litu við í betri stofu Menningarsmyglsins og ræddu kvikmyndina Don’t Look Up við ritstjóra Smyglsins.
Þar að auki var rætt stuttlega um Himininn yfir Berlín, þáttaröðina Kalifat, makedónskar kvikmyndir á borð við Honeyland og Systrabönd og ýmislegt fleira. Loks kemur ljóðskáldið Willie Watson við í óvænta heimsókn og flytur ljóðrýni á Don’t Look Up.
Þetta var fyrsti þátturinn sem Menningarsmyglið vinnur í samstarfi við Samstöðina, en planið er að þættirnir verði vikulegir – og fjallað verður um bíó og bækur til skiptis.
Texti: Ásgeir H Ingólfsson