„Fyrsti klukkutíminn á Endgame er bara eins og að horfa á mynd eftir Ingmar Bergman.“

Spider-Man: No Way Home er fjórfalt vinsælli en nokkur önnur bíómynd eftir að kófið skall á heimsbyggðinni. En hvað þýðir þetta fyrir heimsbíóið og fyrir Hollywood? Hvað með allar hinar myndirnar? Hvað er besservisserabensín? Og er eitthvað vit í þessum nýjustu ævintýrum Köngulóarmannsins? Við fengum Birtu Ögn Elvarsdóttur, söngleikjafræðing og starfsmann í myndasögubúðinni Nexus, og Arnar Eggert Thoroddsen, tónlistarblaðamann, poppkúltúrfræðing og háskólakennara, til að rýna í málið.

Auk þess ræddum við stuttlega um aðrar stórmyndir síðustu jóla á borð við Sögu úr Vesturbænum (West Side Story), The Matrix Resurrections og Ghostbusters: Afterlife, auk þess sem sjónvarpsserían Euphoria kom við sögu.

Þetta var þriðji þátturinn sem Menningarsmyglið vinnur í samstarfi við Samstöðina, en planið er að þættirnir verði vikulegir – og fjallað verður um bíó og bækur til skiptis.

Viltu meira Menningarsmygl? Hér geturðu gerst áskrifandi á Karolina Fund og þar með tryggt framtíð miðilsins.

Texti: Ásgeir H Ingólfsson