“Peysur eru flíkur sem börnin eru klædd í þegar mömmunni er kalt” – Guðrún Helgadóttir
Í bíósmygli vikunnar fjöllum við um Skjálfta, sem er fyrsta mynd Tinnu Hrafnsdóttur í fullri lengd og er byggð á Stóra skjálfta, skáldsögu Auðar Jónsdóttur. Þetta er mynd um þegar líf sögu fer á annan endan þegar hún fær óvænt flogakast – en ekki síður mynd um fjölskyldumynstur sem ganga kynslóð fram að kynslóð, minnið og áföllin sem marka okkur, sem og auðvitað íslenska kjötsúpu.
Þær Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Brynhildur Björnsdóttir ræða myndina, en fjalla sömuleiðis um Terry Pratchett, námuslys í Chile, Maid, Insomnia og Menento, sem og Þykjustuleikana, Pieces of Her, Bridgerton, The Marvelous Mrs Maisel, Hvíta tígurinn, Vanessa mín myrka og ýmislegt fleira.
Texti: Ásgeir H Ingólfsson