Menningarsmygl er nú skyndilega orðinn sjónvarpsframleiðandi – og það gerðist eiginlega alveg óvart. Þetta blessaða kóf olli því að ljóðahátíðin Ljóðamála á almannafæri endaði í sjónvarpinu – nánar tiltekið á N4, þar sem hún hefst þann 15. júní næstkomandi og verður í gangi þar sem og hér á blogginu í allt sumar.

Þið getið fengið smá nasaþef af hátiðinni hér í stiklu sem Kári Liljendal klippti saman.

Á hátíðinni er ljóðskáldum og leikstjórum stefnt saman til að búa til myndræna ljóðahátíð.

Slíkt stefnumót átti upphaflega að verða lítill hluti af stærri ljóðahátíð á Norðurlandi síðasta haust – en nokkrar covid-bylgjur komu í veg fyrir þá hátíð og því ákváðum við að breyta algjörlega um kúrs og leggja frekar alvöru metnað í myndvinnsluna, frekar en að bíða bara eftir að geta lesið upp fyrir framan fólk.

Niðurstaðan varð sjö þátta sería með 14 ljóðskáldum og 7 leikstjórum sem sýnd verður á N4 í sumar, auk þess sem efnið mun einnig birtast á smygl.is í bland við alls kyns viðbótarefni.

Meðal viðbótarefnis er til dæmis þetta myndband hér, örlítill óður til rakara og afsökunarbeiðni með. Nánar tiltekið ljóðið Rakarinn í Polis – með örlitlum formála og eftirmála.

Ljóðskáldin sem koma fram í þáttunum eru eftirfarandi:

Akureyrarskáldin eru Arnar Már Arngrímsson, Eyþór Gylfason, Sesselía Ólafs, Vilhjálmur B. Bragason og Ásgeir H Ingólfsson. Að sunnan koma svo Bergþóra Snæbjörnsdóttir, María Ramos, Loki, Soffía Bjarnadóttir, Þórdís Helgadóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Fulltrúar umheimsins eru svo hin tékkneska Tereza Riedlbauchová, Jonas Gren frá Svíþjóð og Vestur-Íslendingurinn Darrell Jónsson frá Bandaríkjunum.

Ilona Gottwaldova, Eiríkur Örn Norðdahl og Ásgeir H Ingólfsson sjá um að þýða ljóð þeirra síðastnefndu og munu þau öll birtast á skjánum líka, enda löngu tímabært að gera þýðendur miklu sýnilegri.

Kvikmyndagerðarmennirnir sem færa okkur ljóðskáldin heim í stofu eru svo þessi fríði hópur:

Kári Liljendal, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Atli Sigurjónsson, Haukur Valdimar Pálsson,

Hallur Örn Árnason, Gunnlaugur Starri Gylfason og Darrell Jónsson.

Darrell sér líka um upptöku í myndveri í MeetFactory, þar sem Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H Ingólfsson kynna dagskrána.

Það er Ásgeir H Ingólfsson sem hefur yfirumsjón með þáttaröðinni. Framleiðendur eru Menningarsmygl og Urban Space Epics.

Carl Warwick samdi stef þáttanna út frá broti úr Völuspá.

Styrktaraðilar eru Miðstöð íslenskra bókmennta, Akureyrarbær og Landsbankinn. Sem og auðvitað allir áskrifendur smyglsins!

Viltu meira Menningarsmygl? Hér geturðu gerst áskrifandi á Karolina Fund og þar með tryggt framtíð miðilsins.

Texti: Ásgeir H Ingólfsson