Akureyska verðlaunaskáldið Arnar Már Arngrímson og Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Fjöruverðlaunahafi frá Úlfljótsvatni, hefja leik á Ljóðamála þetta árið. Bæði hafa getið sér gott orð fyrir skáldsögur en auk þess hefur Arnar Már sent frá sér ljóðabókina Kannski er það bara ég og Bergþóra ljóðabækurnar Daloon daga og Flórída.

Þáttinn má horfa á í spilaranum hér fyrir ofan en það eru Kári Liljendal og Magnea Björk Valdimarsdóttir sem leikstýra ljóðamyndböndunum og fyrir utan þau kemur hefðbundið fastagengi Ljóðamála að útsendingunni; Darrell Jónsson sér um upptöku í myndveri MeetFactory, þar sem Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H Ingólfsson kynna dagskrána.

Það er Ásgeir H Ingólfsson sem hefur yfirumsjón með þáttaröðinni. Framleiðendur eru Menningarsmygl og Urban Space Epics.

Carl Warwick samdi stef þáttanna út frá broti úr Völuspá.

Styrktaraðilar eru Miðstöð íslenskra bókmennta, Akureyrarbær og Landsbankinn. Sem og auðvitað allir áskrifendur smyglsins!

Viltu meira Menningarsmygl? Hér geturðu gerst áskrifandi á Karolina Fund og þar með tryggt framtíð miðilsins.